Edda Hermannsdóttir

Kristján Kristjánsson

Edda Hermannsdóttir

Kaupa Í körfu

Allar skemmtanir á vegum Menntaskólans á Akureyri, MA, hafa um árabil verið áfengis- og tóbakslausar. Þannig er til að mynda árshátíð skólans, sem jafnan er haldin í kringum fullveldisdaginn 1. desember ár hvert, ein stærsta vímulausa skemmtun af þessu tagi haldin hér á landi. Hana sækja að jafnaði 800 til 1.000 manns. Árvisst busaball sem svo er nefnt er einnig haldið án þess að vímuefni séu höfð um hönd. Þá hefur allt félagslíf í MA verið reyklaust um langt skeið, langleiðina í tvo áratugi. MYNDATEXTI: Edda Hermannsdóttir formaður Skólafélagsins Hugins í MA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar