Eiðar á Fljótsdalshéraði

Steinunn Ásmundsdóttir

Eiðar á Fljótsdalshéraði

Kaupa Í körfu

Eiðar | Það hljóðnaði yfir 68 skólabörnum í Grunnskólanum á Eiðum, þegar Páll Ólafsson skáld og Ragnhildur kona hans riðu árla morguns í hlað á fráum fákum á degi íslenskrar tungu. Hjónakornin námu staðar á skólahlaðinu og Páll kvað vísu að römmum sið og Ragnhildur ljóðaði. Svippuðu þau sér að því búnu af baki og héldu með nemendum til stofu, þar sem sex ára bekkurinn kvaðst á við Pál og sjö ára börnin fjölluðu um líf og skáldstarf hans. Í hlutverkum hjónanna frá Hallfreðarstöðum voru þau Charles Ross og Áslaug Kjartansdóttir. MYNDATEXTI: Ljóðað á skólabörn Charles Ross og Áslaug Kjartansdóttir í hlutverkum Páls skálds og Ragnhildar konu hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar