Óvænt afmælisgjöf.

Óvænt afmælisgjöf.

Kaupa Í körfu

Margrét Hákonardóttir, leikskólastýra frá Brúarási, tók sér frí úr vinnunni í tilefni 50 ára afmælis og gerði sér ferð í Mývatnssveit ásamt eiginmanni sínum, Eyjólfi Jóhannssyni. Það skemmtilega var að Margrét reyndist vera 50 þúsundasti gestur jarðbaðanna á þessu ári og fékk hún af því tilefni konfektkassa og árskort í böðin fyrir þau hjónin. Aðspurð segist hún ætíð koma við í böðunum þegar hún á leið um Mývatnssveit en hún stundar nám við Háskólann á Akureyri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar