Stjórnarfundur Árvakurs

Stjórnarfundur Árvakurs

Kaupa Í körfu

Hluthafafundi í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, var fram haldið í gær og nýir menn kosnir í stjórn. RAGNHILDUR Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson komu ný inn í stjórn Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, þegar hluthafafundi sem hafði verið frestað hinn 10. nóvember sl. var fram haldið í gær. Stefán Pétur Eggertsson verður áfram stjórnarformaður Árvakurs. Félagið sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu að loknum hluthafafundinum: "Í dag þriðjudaginn 22. nóvember 2005 kl. 17.00 var fram haldið hluthafafundi Árvakurs hf. sem frestað var 10. nóvember sl. Á dagskrá var stjórnarkjör. Stjórn félagsins sem var sjálfkjörin og skipt hefur með sér verkum skipa eftirtalin: Formaður: Stefán Pétur Eggertsson. Varaformaður: Kristinn Björnsson. Ritari: Halldór Þór Halldórsson. Meðstjórnendur: Ragnhildur Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson. Varastjórn: Leifur Sveinsson, Hallgrímur B. Geirsson og Helga Gunnarsdóttir. MYNDATEXTI: Hluthafafundi í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, var fram haldið í gær og nýir menn kosnir í stjórn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar