Jólaverslun

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jólaverslun

Kaupa Í körfu

Ég er því miður ekki nógu bjartsýnn á umhverfi okkar eða þróun í andlegum efnum svo kölluðum. Það ægir öllu saman. Ef við lítum á bókmenntir og listir gæti ég lýst afstöðu minni með því að vitna til eins þekktasta skáldsagnahöfundar heims nú um stundir, brasilíumannsins Paulo Coelho sem mér finnst bæði góður og slappur. Skáldsaga hans, Alkemistinn, er sérstæð og uppörvandi bók um aðlaðandi umhverfi langt úr alfaraleið. Þegar ég hafði lesið hana, hlakkaði ég til að fá Ellefu mínútur í hendur og náði mér í enska útgáfu, en milli þessara tveggja bóka eftir sama höfund er himinn og haf, að mínu viti. MYNDATEXTI Glingurneysla og gróði "Lýðræði situr uppi með marga fylgikvilla eins og við sjáum bezt í Bandaríkjunum og við verðum að láta það yfir okkur ganga. Lýðræðið er ekki fullkomið. Og markaðsþjóðfélagið enn síður, það er t.a.m. enginn sérstakur bandamaður sannra verðmæta, svo mikla áherzlu sem það leggur á glingurneyzlu; og gróða."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar