Jólastemning á Ingólfstorgi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jólastemning á Ingólfstorgi

Kaupa Í körfu

Fyrsti glugginn á stærsta jóladagatali landsins var opnaður á fimmtudag í kjölfar þess að kveikt var á jólatrénu á Ingólfstorgi. Af því tilefni var leikskólabörnum boðið til veislu þar sem dansað var í kringum jólatréð og jólalög sungin. Krökkunum til mikillar gleði mætti jólasveinn á svæðið og stýrði veislunni. Dagatalið er staðsett á framhlið húsakynna Tryggingamiðstöðvarinnar við Aðalstræti og er hluti af jóladagatali Stöðvar 2, Galdrabókinni, sem sýnt verður fram að jólum. Börnunum var jafnframt boðið upp á hressingu og öll fengu þau Galdralitabók að gjöf.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar