Söfnun til styrktar Alnæmissamtökunum

Brynjar Gauti

Söfnun til styrktar Alnæmissamtökunum

Kaupa Í körfu

FYRSTI DAGUR desembermánaðar er alþjóðlegur baráttudagur gegn alnæmi í heiminum. Fjöldi samtaka og einstaklinga víða um heim notar daginn til að vekja máls á útbreiðslu alnæmis og hugsanlegum forvörnum gegn því í heiminum. Snyrtivörufyrirtækið MAC kom fyrir 11 árum á fót Alnæmissjóði og rennur meðal annars allur ágóði af sölu varalita fyrirtækisins óskiptur í hann. MAC VIVA GLAM varalitirnir voru seldir í versluninni Debenhams í Smáralind síðastliðinn laugardag, auk þess sem fjöldi þjóðþekktra einstaklinga tók við frjálsum framlögum í sjóðinn. MYNDATEXTI Birna Þórðardóttir, formaður Alnæmissamtakanna, seldi varaliti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar