Vetrarríki norðan heiða.

Benjamín Baldursson

Vetrarríki norðan heiða.

Kaupa Í körfu

Vetrarríkið er algjört norðan heiða um þessar mundir. Dagarnir dimmir og mikið frost, en afskaplega fallegt yfir að líta yfir hádaginn, enda trén einkennilega hrímuð. Nú spáir hlýnandi um komandi helgi og þá má búast við að jólasnjórinn láti undan sunnanvindinum. Á myndinni er hún Elísabet Lind Hlynsdóttir, sem er í 3. bekk í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit að máta sig við jólalegu trén við skólann og hafði að sjálfsögðu sett upp viðeigandi höfuðfat fyrir myndatökuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar