Bubbi Morthens

Árni Torfason

Bubbi Morthens

Kaupa Í körfu

Það hefur mikið gengið á í lífi Bubba Morthens á þessu ári, vænir skammtar af súru og sætu. Hjónaskilnaður, tvær útgefnar plötur, aðrar tvær endurútgefnar og eitt stykki málaferli við 365-fjölmiðlasamsteypuna eru aðeins nokkrir af þeim viðburðum sem hafa hrært hvað mest í Bubba á árinu. Einhverjir myndu kjósa rólegheit eftir svona annríki en Bubbi er þegar farinn að vinna að næstu plötu og nýjum sigrum. Ef eitthvað er virðist hann fílefldur eftir allt það sem gengið hefur á.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar