KEA og Hjálparstofnun kirkjunnar

Kristján Kristjánsson

KEA og Hjálparstofnun kirkjunnar

Kaupa Í körfu

KEA og Norðlenska hafa fært Hjálparstarfi kirkjunnar veglega matargjöf í aðdraganda jóla. Um er að ræða 70 matarpoka - í hverjum þeirra er hamborgarhryggur og meðlæti. Þetta er annað árið í röð sem félögin færa Hjálparstarfi kirkjunnar slíka gjöf. Jón Oddgeir Guðmundsson starfar fyrir Hjálparstarf kirkjunnar á Akureyri og er hann byrjaður að úthluta matargjöfum og fleiru til skjólstæðinga Hjálparstarfsins en svæði þess tekur til Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslna. MYNDATEXTI: Matargjöf Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, kynningar- og markaðsfulltrúi KEA, afhenti Jóni Oddgeiri Guðmundssyni hjá Hjálparstarfi kirkjunnar matargjöfina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar