Leiklistarskólinn

Leiklistarskólinn

Kaupa Í körfu

Leiklistardeild tók til starfa við Listaháskóla Íslands árið 2000, sama ár og Leiklistarskóli Íslands var lagður niður. Í haust bættust hins vegar tvær nýjar brautir við hina hefðbundnu leikarabraut innan deildarinnar, dansbraut og Fræði og framkvæmd, og er það mál manna í skólanum, jafnt forsvarsmanna sem nemenda, að verulegur ávinningur sé að breytingunni; fjölbreytni hafi aukist og hver braut styðji hinar. Inga María Leifsdóttir ræddi við deildarforseta leiklistardeildar LHÍ, Ragnheiði Skúladóttur, og fagstjóra og nemendur á hverri hinna þriggja brauta. MYNDATEXTI: Fagstjórar og deildarforseti leiklistardeildar Listaháskóla Íslands: Egill Heiðar Anton Pálsson, Karen María Jónsdóttir, Ragnheiður Skúladóttir og Magnús Þór Þorbergsson í efri röð frá vinstri. Nemendur af öllum brautum í neðri röð frá vinstri: Hallgrímur Ólafsson, Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir og Árni Kristjánsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar