Umferðarslys

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Umferðarslys

Kaupa Í körfu

JEPPI og fólksbíll skullu saman á Vesturlandsvegi skammt norðan við Grundarhverfi á Kjalarnesi klukkan rúmlega 17 í gær með þeim afleiðingum að báðir fóru út af veginum. Kona sem ók jeppanum festist í flakinu og var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang með tækjabíl og tókst að klippa sundur húsið á bílnum og ná konunni út. Var hún flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en reyndist óbrotin og ekki alvarlega slösuð, að sögn vakthafandi læknis. Hún var þó lögð inn á gæsludeild spítalans til eftirlits yfir nótt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar