Eli Roth

Jónas Erlendsson

Eli Roth

Kaupa Í körfu

Mýrdalur | Fjörurnar í Mýrdal eru vinsælir áfangastaðir ferðafólks. Svartur sandurinn og öldurnar sem brotna á honum eru augnakonfekt. Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Quentin Tarantino og félagar hans sem staddir voru hér á landi um áramótin fóru í fjórhjólaferð um Mýrdalssand og niður á Höfðabrekkufjöru. Þótt það sé líkamlegt erfiði að stýra fjórhjóli í fyrsta skipti við aðstæður eins og þar eru gat einn úr hópnum, leikstjórinn Eli Roth, gert nokkrar leikfimiæfingar í fjörunni og höfðu allir gaman af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar