Passat 2.0 TFSI

Þorkell Þorkelsson

Passat 2.0 TFSI

Kaupa Í körfu

ÞAÐ urðu heldur betur umskipti þegar yngsta kynslóð VW Passat, sú sjötta í röðinni, var fyrst kynnt síðastliðið vor. Passat hafði þá undanfarin ár verið í fararbroddi í svokölluðum D-stærðarflokki hvað búnað og aksturseiginleika áhrærði - hafði í þau 32 ár sem hann hafði verið á markaði þótt fremur traustvekjandi en spennandi bíll í útliti. Óhætt er að segja að VW hafi tekist vel upp með nýja bílinn sem er ungæðislegri í allri hönnun svo jaðrar við sportlegheit og hann náði að skjóta keppinautunum, sem voru farnir að nálgast hann allverulega í smíðagæðum og búnaði, aftur ref fyrir rass. Hann er líka þegar farinn að sanka að sér alþjóðlegum viðurkenningum. MYNDATEXTI: Passat er farinn að banka fast á dyr lúxusflokksins í Higline-útfærslu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar