Bláfjöll opna

Brynjar Gauti

Bláfjöll opna

Kaupa Í körfu

GERT er ráð fyrir því að skíðasvæðið í Bláfjöllum verði opið í dag og næstu daga segir Grétar Þórisson, forstöðumaður skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu. Lyftur verða opnaðar kl. 10 og verða opnar til kl. 18. "Snjórinn er þurr og léttur; ekta íslensk fönn," sagði hann við Morgunblaðið í gærkvöld. Hann gerir ráð fyrir að átta til tíu lyftur verði opnar í dag. Töluvert snjóaði í fjöllin í fyrrinótt en ekki þó nægilega til að opna megi skíðasvæðið í Skálafelli. MYNDATEXTI Þeir Arnar Freyr Thoroddsen og Daníel Freyr Albertsson voru ánægðir með að komast á bretti og vona að snjórinn, sem nú loksins er kominn í fjöllin, haldist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar