Singapore Sling

Sigurjón Guðjónsson

Singapore Sling

Kaupa Í körfu

Það reyndist Íslendingum þrautin þyngri að skipa Singapore Sling í þægilegan bás þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum. Þeir voru með sérstakan tambúrínuleikara, með stæla uppi á sviði, og virtist vera skítsama um viðtökurnar sem þeir fengu. Mér eru sérstaklega minnisstæðir tónleikar í Norðurkjallara MH þar sem hljómsveitin spilaði í heila klukkustund fyrir tvo, kannski þrjá, áhugasama rokkhunda, meðan félagsmálafulltrúarnir kvörtuðu yfir hávaða og lengd tónleikanna - raunar spilaði sveitin svo lengi að listafélag skólans neyddist til þess að slökkva á Slingurunum áður en þeir luku sér af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar