Ísland - Noregur 33:36

Brynjar Gauti

Ísland - Noregur 33:36

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var þungt hljóðið í Viggó Sigurðssyni, þjálfara íslenska landsliðsins, eftir 36:33 tap liðsins gegn Norðmönnum í gær í St. Gallen í Sviss enda var á þeim tíma ljóst að liðið væri úr leik hvað varðar sæti í undanúrslitum keppninnar og þurfti að stóla á stórsigur Rússa gegn Dönum í þeirri von að enda í þriðja sæti milliriðilsins og leika um 5. sætið á mótinu í Zürich á laugardaginn. Það varð ekki raunin þar sem að Danir gerðu sér lítið fyrir og unnu Rússa og leika Danir því til undanúrslita ásamt Króatíu. MYNDATEXTI Guðjón Valur Sigurðsson skorar hér eitt af sex mörkum sínum gegn Norðmönnum - sendi knöttinn fram hjá Steinar Ege, félaga sínum hjá Gummersbach

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar