Vinstri Grænir og strætó

Vinstri Grænir og strætó

Kaupa Í körfu

"VIÐ viljum fá strætó aftur heim til Reykjavíkur," sagði Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, sem ásamt Svandísi Svavarsdóttur og Þorleifi Gunnlaugssyni, frambjóðendum VG, fundaði með starfsfólki Strætós bs. í gær. Sagði Árni Þór reynsluna af sameiningu Strætisvagna Reykjavíkur (SVR) og Almenningsvagna hafa valdið sér miklum vonbrigðum og vera ein samfelld árekstrasaga þar sem byggðasamlagsformið væri stórgallað. MYNDATEXTI: Fundur frambjóðenda Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs til borgarstjórnar í Reykjavík með starfsfólki Strætó bs. var vel sóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar