Kynning á skýrslu um reiðhallir

Kynning á skýrslu um reiðhallir

Kaupa Í körfu

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynntu í gær skýrslu um reiðhallir, reiðskemmur og reiðskála en skýrsla þessi er unnin í kjölfar ályktunar Alþingis um að landbúnaðarráðherra skipi nefnd sem geri úttekt á aðstöðu til hestamennsku á landsbyggðinni og leggi fram tillögur um stuðning ríkissjóðs við uppbyggingu hennar. Nefndin var skipuð fulltrúum Bændasamtaka Íslands, Landssambands hestamanna, Ferðamálaráðs Íslands, Akureyrarbæjar, landbúnaðarráðuneytisins auk þess sem Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri og varaþingmaður, átti sæti í nefndinni, en hann var einn af flutningsmönnum tillögunnar. MYNDATEXTI: Guðni Ágústsson kynnir efni skýrslunnar á blaðamannafundinum. Hjá honum sitja Árni M. Mathiesen og Sigurgeir Þorgeirsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar