Alex MacNeil söngvari Kimono

Sigurjón Guðjónsson

Alex MacNeil söngvari Kimono

Kaupa Í körfu

Tónlistarverðlaun X-FM verða veitt í Austurbæ 23. febrúar næstkomandi. Þar verða veitt verðlaun fyrir bestu plötu ársins, besta lag ársins, besta vef ársins og margt fleira MYNDATEXTI Kimono eru líklegast mest prófessjonal bandið af þeim sem eru tilnefnd. Þessir drengir eru ekki með neina stæla, enga búninga, ekkert nema sjálfa sig og rokkið. Lagasmíðar Kimono eru að mörgu leyti fágaðri en annarra íslenskra rokkhljómsveita, þeir hika ekki við að brjóta reglurnar þegar kemur að lagabyggingu og öðru. Á tónleikum lifna lögin við, verða lausari í reipunum, mjúku kaflarnir mýkjast og hinir kraftmeiri ýkjast. Þetta eru artí pésar sem gefa sig alla í hvert slag, hvern tón, svo úr verður innileg og eftirminnileg reynsla á heimsmælikvarða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar