Alvarlegt umferðarslys

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Alvarlegt umferðarslys

Kaupa Í körfu

Fimmtán ára stúlka, sem ekið var á á Bæjarbraut í Garðabæ síðdegis í gær liggur lífshættulega slösuð á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Stúlkan gekkst undir aðgerðir í gær vegna meiðsla sem hún hlaut og var í kjölfarið flutt á gjörgæsludeildina þar sem henni er haldið sofandi í öndunarvél. Stúlkan var fótgangandi á leið yfir götuna á gangbraut þegar ekið var á hana um fimmleytið í gærdag. Tildrög slyssins voru enn óljós í gærkvöldi en lögreglan í Hafnarfirði fer með rannsókn málsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar