Nýr bátur

Alfons Finnsson

Nýr bátur

Kaupa Í körfu

NÝR bátur, Gunnar Bjarnarson SH, kom í heimahöfn í Ólafsvík á laugardag. Útgerðarfélagið Haukur hefur fest kaup á þessum bát sem er einn hinna svokölluðu Kínabáta. Báturinn hét áður Ósk KE og var gerður út frá Keflavík og er hann 94,7 tonn að stærð. Gunnar Bjarnarson verður gerður út á dragnót og á heimleiðinni stóðst áhöfnin ekki að prófa bátinn, enda er laugardagur til lukku, og margur sjómaðurinn hjátrúarfullur. Skipshöfnin tók tvö höl út af Skarðsvík og náði í um tvö tonn, góð byrjun hjá þeim. Alls eru fimm menn í áhöfn bátsins. Fyrir á útgerðarfélagið Haukur eldri bát sem hefur borið sama nafn og er hann nú til sölu. MYNDATEXTI Þorsteinn, Hilmar og Smári Haukssynir gera út Gunnar Bjarnarson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar