Mótmæli MA-inga á Ráðhústorgi

Skapti Hallgrímsson

Mótmæli MA-inga á Ráðhústorgi

Kaupa Í körfu

Nei, Bjarni minn, það er ekki 17. júní, sagði einn starfsmanna leikskólans Álfasteins í Hörgárbyggð. Börnin höfðu brugðið sér bæjarleið, röltu um miðbæinn á Akureyri fagran morgun í vikunni og þá dundi tónlist úr hljóðkerfi frá Ráðhústorgi og eftir göngugötunni í Hafnarstræti stormuðu menntaskólanemar á mótmælafund. Sá stutti tengdi tónlist og skrúðgöngu við þjóðhátíðardag Íslendinga, enda er honum eflaust ekki kunnugt um áform um að stytta nám til stúdentsprófs og að MA-ingum væri heitt í hamsi vegna þess.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar