Ísland og Trinidad and Tobago 0:2

Ísland og Trinidad and Tobago 0:2

Kaupa Í körfu

Það var margt jákvætt í okkar leik og að sama skapi var margt sem við þurfum að laga og við munum fara yfir þessa hluti og finna lausnir á því," sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari eftir 2:0-tap íslenska liðsins í vináttulandsleik gegn Trínidad og Tóbagó í gær á Loftus Road í Lundúnum. Leikurinn var sá fyrsti hjá Eyjólfi í starfi sínu sem landsliðsþjálfari en hann bar sig vel og sá margt jákvætt í leik liðsins þrátt fyrir 2:0-tapið. MYNDATEXTI: Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska landsliðsins, ræddi við Hollendinginn Leo Beenhakker, hinn reynda þjálfara Trínidad og Tóbago, í leikslok á Loftus Road í London í gærkvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar