Straumur Burðarás

Straumur Burðarás

Kaupa Í körfu

BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, sagði í ræðu sinni á aðalfundi bankans í gær að innan tíðar mætti vænta kaflaskila í rekstri fjármálafyrirtækja á Íslandi. Sagði hann að íslenskar fjármálastofnanir hefðu notið góðrar arðsemi af fjárfestingum sínum á innlendum hlutabréfamarkaði og að heimamarkaðurinn hefði fjármagnað íslensk fyrirtæki í alþjóðlegri starfsemi í talsverðum mæli. MYNDATEXTI: Kátir Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, Þórður Már Jóhannesson forstjóri og Magnús Kristinsson stjórnarmaður voru kátir á aðalfundinum í gær enda var uppgjör síðasta árs gott.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar