Noa Noa - Föt

Noa Noa - Föt

Kaupa Í körfu

Það er ekki bara brúðurin sem þarf að velta vöngum yfir viðeigandi klæðnaði fyrir athöfnina og veisluna. Prúðbúnir gestir leggja sitt líka af mörkum og ekki úr vegi að spá eilítið í hvað er í vændum í kventískunni í vor og sumar....Nokkrar útfærslur á sumartískunni...Svava í bláum bómullarleggings með hnepptri líningu og sítrónulitu pilsi úr silkibómull með bryddingum. Peysan er líka blá, úr bómull og með bóleró-sniði. Hún er opin að framan og haldið saman með stakri nælu sem einnig má nota til að skreyta jakka. Skórnir eru silfurlitir, með málmáferð og skrauti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar