Lífið er grásleppa

Líney Sigurðardóttir

Lífið er grásleppa

Kaupa Í körfu

Þórshöfn | Grásleppukarlar hafa verið að undirbúa sig fyrir vertíðina en heimilt var að leggja fyrstu net í sjó 10. mars sl. Aðeins fimm til sex bátar verða á grásleppu þetta vorið en þeim hefur fækkað undanfarin ár. ....Sæmundur Einarsson var annar þeirra sem byrjuðu vertíðina strax á föstudagsmorguninn og er hann ekki hrifinn af þeirri breytingu sem gerð var á fyrirkomulagi grásleppuveiða á þessari vertíð. "Við megum veiða fimmtíu daga alls, talið strax frá fyrsta róðri. Verði gæftaleysi á tímabilinu og ekki hægt að róa þá falla þeir dagar niður, við getum ekki nýtt þá," sagði Sæmundur, óhress með fyrirkomulagið og telur ólíklegt að sjóveður verði fyrir smábáta heila fimmtíu daga í beit.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar