Íþróttavæðing Íslands

Íþróttavæðing Íslands

Kaupa Í körfu

ÍÞRÓTTAVÆÐUM Ísland - aukin þátttaka - breyttur lífsstíll er heiti skýrslu sem inniheldur tillögur starfshóps þar sem stjórnvöld, hagsmunasamtök og almenningur eru hvött til að vinna saman að því markmiði að íþróttavæða landið. Er markmiðið að auka þátttöku í íþróttum og gera hreyfingu að lífsstíl. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði þegar skýrslan var kynnt í gær að gildi íþrótta og hreyfingar til forvarna væri ótvírætt og hefði efnahagsleg áhrif í heilbrigðari lífsstíl sem þýddi minni kostnað í heilbrigðiskerfinu. MYNDATEXTI: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson fylgjast með börnum á Urðarhóli í Kópavogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar