Skepnuskapur í veðrinu fyrir norðan

Skepnuskapur í veðrinu fyrir norðan

Kaupa Í körfu

Hrossin á bænum Holti létu veðrið lítið á sig fá þegar þau átu fóðrið sitt við bakka Laxár á Ásum enda höfðu þau fengið úr mannahöndum, öfugt við hrafninn sem sveif fyrir ofan þau. Búast má við því að hann hafi þurft að hafa talsvert fyrir fæðuöfluninni því leiðindatíð hefur verið að undanförnu á norðanverðu landinu. Heimamenn eru orðnir langeygir eftir betri tíð. Samkvæmt veðurspá fer rokinu að slota en áfram verður kalt í veðri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar