Joseph Kosuth

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Joseph Kosuth

Kaupa Í körfu

SÝNING á verki Joseph Kosuths Auðþekkjanleg ólíkindi var opnuð á Kjarvalsstöðum í gærdag en það er sérstaklega ofið, risastórt teppi sem þekur allan vestursal safnsins og býður áhorfandanum að ganga um hugarheim H.C. Andersens en ganga má á teppinu. Ævintýrið um nýju fötin keisarans er ofið í teppið auk þess sem Kosuth notar tilvitnanir frá samtímamanni Andersens og helsta gagnrýnanda hans, Søren Kierkegaard, til að brúa hugmyndaheim þeirra tveggja. MYNDATEXTI Listamaðurinn Joseph Kosuth skýrir hér verk sitt fyrir Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar