Gamli Baldur

Gunnlaugur Árnason

Gamli Baldur

Kaupa Í körfu

Stykkishólmur | Ferjan Baldur, sem hefur fengið nafnið "Gamli Baldur" í hugum Hólmara, hefur lokið hlutverki sínu að flytja fólk og bifreiðar um Breiðafjörðinn. Baldur sigldi úr höfn í Stykkishólmi á laugardaginn áleiðis til Finnlands, þar sem skipið verður áfram notað til ferjusiglinga. Nýir eigendur tóku við skipinu og fimm manna áhöfn sigldi því til nýrra heimkynna. MYNDATEXTI Úr höfn Gamli Baldur sem heitir nú Eivor siglir út úr höfninni í Stykkishólmi í síðasta skipti. Fleiri verða ferðirnar ekki yfir Breiðafjörðinn, heldur stefnan tekin til Finnlands á vit nýrra verkefna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar