Iðnnemar keppa í Kringlunni

Brynjar Gauti

Iðnnemar keppa í Kringlunni

Kaupa Í körfu

TÁPMIKLIR voru þeir og útsjónarsamir, iðnnemarnir sem sýndu listir sínar á Íslandsmóti iðnnema - "Gerðu betur," sem fram fór í Kringlunni fyrir helgina með pompi og prakt í tilefni af degi iðn- og starfsmenntunar. Á Íslandsmótinu öttu kappi nemar í hinum hefðbundnu og fjölbreyttu iðngreinum og mátti þar sjá málmsmiði framtíðarinnar setja saman grill, dúkleggjara skera út mynd á gólfi Kringlunnar, hársnyrtinema klippa og greiða og nema í rafvirkjun tengja flókin lagnaverkefni. Þá sýndu málaranemar stílmálningu en trésmíðanemar settu saman handhæga gripi á meðan snyrtifræðinemar snyrtu, förðuðu og lökkuðu. Einnig sýndu nemar í múrverki listir sínar í flísalögn og síðast en ekki síst settu pípulagningamenn framtíðarinnar saman mikil rörlistaverk. Alls voru skráðir til leiks 72 keppendur frá 11 skólum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar