Anna Jóelsdóttir

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Anna Jóelsdóttir

Kaupa Í körfu

TVÆR LISTAKONUR opna sýningu í Listasafni ASÍ í dag. Í Ásmundarsal opnar sýning á verkum Önnu Jóelsdóttur. Anna, sem búsett hefur verið í Chicago um árabil, kallar sýninguna "Heima?/Home?" "Ég get sagt að ég eigi heima í tveimur löndum og hugur minn er alltaf á einhvern hátt á tveimur stöðum í einu; á Íslandi og í Chicago, þar sem ég hef búið síðan 1992. Á sýningunni er ég að velta þessu fyrir mér: Hvað er heima," sagði Anna þegar blaðamaður náði af henni tali, en hún mun setja sömu sýningu upp í Zg-galleríinu í Chicago.MYNDATEXTI Anna sýnir í Ásmundarsal innsetningar stórra, lítilla, örsmárra, ferhyrndra, sporöskjulaga og þrívíðra verka.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar