Alvarlegt slys á Reykjanesbraut

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Alvarlegt slys á Reykjanesbraut

Kaupa Í körfu

KARLMAÐUR á fertugsaldri liggur alvarlega slasaður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi eftir umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut á fjórða tímanum í gærdag. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, slasaðist illa þegar hann velti jeppabifreið sinni skammt vestan við Grindavíkurafleggjara og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hann gekkst undir aðgerð. Í gærkvöldi fengust þær upplýsingar hjá vakthafandi lækni að manninum væri haldið sofandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar