Ingvarsslysið

Eyþór Árnason

Ingvarsslysið

Kaupa Í körfu

Þúsundir Reykvíkinga fylgdust skelfingu lostnir með því, þegar skipverjar á Ingvari slitnuðu úr reiðanum og fórust einn af öðrum meðan skipið liðaðist í sundur á skerinu við Viðey. Þennan dag, 7. apríl 1906, gerði hamslaus veðurföll og fórust 68 menn á þremur þilskipum úr Reykjavík og tvo menn tók út af tveimur öðrum á Flóanum. Freysteinn Jóhannsson rifjar upp þennan svarta apríldag fyrir 100 árum. MYNDATEXTI: Þetta ankeri fannst fram af Hjallaskeri við Viðey í apríl 1986 og var sett upp í eynni til minningar um þá, sem fórust við eyna og annars staðar á Faxaflóa 7. apríl 1906; 70 menn á þremur þilskipum. Örlygur Hálfdanarson stóð fyrir leit að ankerinu og uppsetningu minnismerkisins. Hann telur það vera tilfærsluankeri af Ingvari, en legufæri Ingvars voru tekin upp vorið eftir slysið og segir í minningum Geirs Sigurðssonar, að spaðarnir hafi verið brotnir af á báðum ankerum, en legufærin hafi verið þung og sérlega vönduð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar