ÖBÍ í Kringlunni

Brynjar Gauti

ÖBÍ í Kringlunni

Kaupa Í körfu

KYNINGARÁTAKINU Eitt samfélag fyrir alla var hleypt af stokkunum í Kringlunni í gær, en það er Öryrkjabandalag Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að sögn Hafdísar Gísladóttur, framkvæmdastjóra ÖBÍ, er markmið átaksins að vekja athygli á þeirri aðgreiningu sem á sér stað í samfélaginu og benti hún á að það ætti ekki einungis við um líkamlegt aðgengi fatlaðra heldur einnig um að allir fengju að taka þátt í samfélaginu og fengju aðgang að upplýsingum, búsetu, atvinnu og menntun. MYNDATEXTI Fulltrúar ungliðahreyfinga innan ÖBÍ hleypa átakinu Eitt samfélag fyrir alla af stokkunum í Kringlunni í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar