Humar á Hornafirði

Kristinn Benediktsson

Humar á Hornafirði

Kaupa Í körfu

Fyrstu bátarnir byrjuðu á humarnum í lok mars og hefur verið mokveiði hjá þeim allan tímann. Við gerum út fjóra báta auk báts sem er hér í viðskiptum, enda eru allir bátar hættir á netum. Þeir fara út eftir ákveðnu kerfi og fiska ákveðið magn svo við erum alltaf með ferskt hráefni í vinnsluna. Kvótinn væri búinn núna ef veiðarnar væru stjórnlausar. Við ráðum yfir um fjórðungi kvótans með okkar eigin kvóta og þeim sem við erum með í leigusamning, svo betra er að ráða við að vinna hann og hámarka arðsemina út úr veiðunum," segir Hermann Stefánsson, framleiðslustjóri, Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn í Hornafirði er tíðindamaður Morgunblaðsins leit við í fyrradag. MYNDATEXTI Hermann Stefánsson framleiðslustjóri hjá Skinney-Þingsnesi er ánægður með humarinn í ár

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar