Bubbi Morthens

Bubbi Morthens

Kaupa Í körfu

ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 6. júní næstkomandi mun Bubbi Morthens halda stórtónleika í Laugardalshöll í tilefni af 50 ára afmæli sínu þann sama dag. Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina 06.06.06, ætlar Bubbi að líta yfir farinn veg og flytja tónlist allt frá fyrstu árunum með Utangarðsmönnum til dagsins í dag, en ferill hans spannar alls 26 ár. Á þriðja tug tónlistarmanna mun koma fram með Bubba á tónleikunum og er búist við því að þeir muni standa yfir í um það bil þrjár klukkustundir. MYNDATEXTI Bjarni Ármannsson og Árni Pétur Jónsson sungu hið klassíska lag Stál og hnífur ásamt Bubba í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar