Rusl

Rusl

Kaupa Í körfu

Reykjavík | Með hækkandi sól og bensínverði fara margir borgarbúar að nota fætur sína og reiðhjól í auknum mæli til að njóta útivistar og jafnvel komast milli staða. Og þegar brynvörnina skortir verður fólk berskjaldaðra fyrir veðrinu, hvort sem það er gott eða slæmt, öðru fólki og umhverfinu, fallegu eða ljótu. Gerist þá fólk gjarnan meðvitaðra um sóðaskapinn í borginni og hafa borgarbúar í auknum mæli rekið augun í rusl, drasl og subbuskap víða. MYNDATEXTI: Létt verk Það ætti að reynast gangandi og hjólandi vegfarendum í létt verk og löðurmannlegt að grípa eins og einn eða tvo poka með sér í ferðina og taka hressilega til hendinni. Yrði ekki bærinn fínn ef borgarbúar gerðu það í auknum mæli? Það er líka góð æfing að beygja sig öðru hverju niður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar