Leirvogsá

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Leirvogsá

Kaupa Í körfu

FRAMKVÆMDIR hófust í gærmorgun við gerð reiðbrúar undir brúnni á Vesturlandsvegi yfir Leirvogsá. Reiðvegur hefur þegar verið lagður við ána, ofan brúar. Var tekið að færa til jarðveg fast við brúna og eitthvað þrengt að ánni. Seinnipartinn í gær voru framkvæmdir stöðvaðar, að sögn Guðmundar Magnússonar, formanns Veiðifélags Leirvogsár, og í dag á að skoða hvort tilskilin leyfi séu til staðar fyrir framkvæmdinni. MYNDATEXTI Starfsmenn verktaka mæla fyrir reiðveginum undir brúnni yfir Leirvogsá síðdegis í gær, en ákvörðun verður tekin um framhaldið í dag. Hestamönnum og veiðimönnum sýnist sitt hvorum um framkvæmdirnar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar