Steinþór Freyr Þorsteinsson - Innkast

Steinþór Freyr Þorsteinsson - Innkast

Kaupa Í körfu

Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður nýliða Breiðabliks, tekur innköst liðsins með miklum tilþrifum KNATTSPYRNUMENN hafa í gegnum tíðina ekki verið þekktir fyrir liðleika og mýkt í hreyfingum. Lomana LuaLua, leikmaður Portsmouth, hefur reyndar haldið uppi merkjum þeirra sem geta talist fimir á knattspyrnusviðinu en hann hefur vakið athygli fyrir heljarstökk sín þegar hann fagnar mörkum í ensku úrvalsdeildinni. Í röðum nýliða Breiðabliks úr Kópavogi er leikmaður sem vakið hefur athygli fyrir óvenjulega útfærslu á innköstum. Sá heitir Steinþór F. Þorsteinsson og er hinn 21 árs gamli leikmaður í sérflokki þegar kemur að innköstunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar