Hættulegar aðstæður á þjóðvegi 1 um Bjarnarflag

Birkir Fanndal

Hættulegar aðstæður á þjóðvegi 1 um Bjarnarflag

Kaupa Í körfu

HÆTTULEGAR aðstæður myndast oft á þjóðvegi 1 við Bjarnarflag þegar gufumökk leggur yfir þjóðveginn. Við slíkar aðstæður sést ekki handa skil á stuttum kafla vegarins. Þetta gerist þegar saman fer köld norðanátt og mikill hiti á vatni í kælilóni við veginn. Mikilvægt er að aka þar rólega áfram en stoppa alls ekki inni í gufumekkinum og sannaðist dæmið fyrir helgi þegar hörð aftanákeyrsla varð þar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar