Dodge Caliber

Brynjar Gauti

Dodge Caliber

Kaupa Í körfu

Hann er sambland skutbíls, hlaðbaks og ekki laust við að útlitið minni einnig á borgarjeppann. Því er ekki að neita að arftaki hlaðbaksins Dodge Neon, Dodge Caliber, sem kom á markað nú í vor og Höfðahöllin hefur flutt hingað til lands er sannkallaður blendingur. Og útlitslega er ekki hægt að segja annað en að bræðslan hafi tekist alveg hreint ágætlega. Bíllinn býr yfir því kröftuga, allt að því "aggressíva" útliti sem einkennir svo marga bandaríska bíla, samhliða nettri línulegri nostalgíu sem þó er afgreidd á nútímalegan hátt með skemmtilegri samtvinnun mýktar og hörku. MYNDATEXTI Hlaðbakur, skutbíll og jafnvel borgarjeppi, allt í einum bíl.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar