Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

Í hvammi austur undir Berserkjahrauni skolar Friðfinnur Níelsson af sex fallegum bleikjum í Þórsá og leggur þær í grasið. "Þetta er afrakstur eins klukkutíma," segir hann og fer að taka sundur stöngina. Friðfinnur býr á Grundarfirði, er kokkur á báti og nú er báturinn í slipp. Friðfinnur hefur notað tækifærið og veitt daglega í Hraunsfirðinum. Tólf í gær, sex í dag. "Hann tók blóðorm og nymfur, helst nymfur með rauðum rassi. Það virtist skipta máli," segir hann hlæjandi. MYNDATEXTI Afrakstur klukkutímans. Friðfinnur Níelsson og bleikjurnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar