Héraðsleikar

Steinunn Ásmundsdóttir

Héraðsleikar

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Hátt í fimm hundruð skólanemendur af Fljótsdalshéraði tóku þátt í svokölluðum Héraðsleikum á föstudag, en þá mættu nemendur allra grunnskóla sveitarfélagsins í Egilsstaði og Hallormsstað og tóku þátt í hvers kyns þrautum og leikjum, m.a. kajakróðri í sundlauginni, pönnukökubakstri og að síga niður kirkjuturninn á Egilsstöðum. Fjörið stóð yfir í rúmar tvær klukkustundir og endaði með herlegri grillveislu á grunnskólalóðinni. Grunnskólarnir á Fljótsdalshéraði eru á Egilsstöðum og Eiðum, í Hallormsstað, Fellabæ og í Brúarási í Jökulsárhlíð

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar