Ungfrú Ísland 2006

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Ungfrú Ísland 2006

Kaupa Í körfu

Mikið var um dýrðir þegar fegursta kona heims, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, krýndi arftaka sinn hér á landi á miðvikudagskvöldið. Keppnin, sem fór fram á Broadway, gekk eins og í sögu eða allt þar til að Unnur Birna steig á rakablett sem myndast hafði á sviðinu með þeim afleiðingum að fegurðardísin féll fram fyrir sig og á hóp annarra fegurðardísa sem þar stóðu. Til allrar hamingju slasaði Unnur Birna sig ekki illa en frá þessu öllu segir hún á bloggsíðu sinni á Fólksvef mbl.is. MYNDATEXTI: Unnur Birna krýndi arftaka sinn, Sif Aradóttur, á miðvikudaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar