Meirihlutaviðræður á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Meirihlutaviðræður á Akureyri

Kaupa Í körfu

FULLTRÚAR Samfylkingarinnar á Akureyri slitu síðdegis í gær viðræðum um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn við Vinstri græna og Lista fólksins og fóru þess í stað fram á það við sjálfstæðismenn að ræða við þá um mögulegt samstarf. Þar sem Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna, er ekki í bænum - hann spreytir sig í dag með veiðistöng á urriðasvæðinu í Laxá í Aðaldal - hittast fulltrúar flokkanna ekki fyrr en í kvöld. MYNDATEXTI Oddur Halldórsson, oddviti L-listans, hverfur inn í herbúðir Samfylkingarinnar í gær og Anna Emilsdóttir á eftir honum. Þau stöldruðu stutt við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar