Snjóflóð í Hvannadalshnjúk

Ragnar Axelsson

Snjóflóð í Hvannadalshnjúk

Kaupa Í körfu

FIMM fjallgöngumenn lentu í snjóflóði í gær á Hvannadalshnúk og slösuðust þrír þeirra þegar flóðið hreif þá um 300 metra leið niður hlíðina. Einn rifbeinsbrotnaði, annar ökklabrotnaði og sá þriðji tognaði á ökkla. Mennirnir fimm voru á göngu, bundnir saman með línu, þegar snjófleki rann af stað, sagði Bjartmar Örn Arnarson, einn fjallgöngumannanna, við komuna til Reykjavíkur í gær ásamt þeim tveimur félögum sínum sem hlutu meiðsli. MYNDATEXTI Þau Ásdís María Rúnarsdóttir og Fannar Freyr tóku vel á móti eiginmanni sínum og föður, Atla Frey Þórðarsyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar