Ljósmyndasýning

Ljósmyndasýning

Kaupa Í körfu

Glenn Moyle heldur sýningu á ljósmyndum sínum á Hótel Ólafsvík um þessar mundir. Moyle er frá Nýja-Sjálandi en tók flestar myndirnar í náttúru Snæfellsness þegar hann dvaldi í Ólafsvík. Glenn Moyle sagði í samtali við fréttaritara að Snæfellsnes væri fallegasti staður í heimi og auðvelt að ná góðum myndum - og litirnir væru einstaklega fallegir. Hann sagðist hafa tekið flestar myndirnar snemma á morgnana og kvöldin. MYNDATEXTI Ljósmyndir Glenn Moyle við nokkur verka sinna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar