Járningar

Sigurður Sigmundsson

Járningar

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var lítið sofið í síðustu viku," segir Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari sem stendur í ströngu þessa dagana. Vart er þverfótað fyrir kynbótasýningum og öðrum mótum og járningamenn hafa í nógu að snúast. Einnig var haldin um síðustu helgi námstefna Járningamannafélags Íslands og Dýralæknafélags Íslands um hóf- og fótamein í hestum og járningar en Sigurður er formaður stjórnar Járningamannafélagsins. MYNDATEXTI Sigurður Torfi Sigurðsson (t.h.) var í vikunni staddur á Blesastöðum á Skeiðum í Árnessýslu að járna hinn efnilega stóðhest Krák, sem er Töfrasonur. Eigandinn Magnús Trausti Svavarsson stendur hjá og "járningahundurinn" Skuggi fylgist með því að allt fari vel fram.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar